Jazzþorpið í Garðabæ '26

8. júní 2026

3.205.201 krónur!

Alls söfnuðust 3.205.201 krónur á Jazzþorpinu í Garðabæ sem fram fór helgina 30. apríl - 3. maí.

Það voru Alzheimersamtökin sem nutu góðs af sölunni þetta árið og fá til sín óskerta sölu af þeim húsgögnum og gripum sem seldust frá Góða hirðinum.

Þökkum öllum þeim sem mættu á Jazzþorpið og styrktu gott málefni og einnig þökkum við Jazzþorpinu fyrir skemmtilegt samstarf og hlökkum við mikið til að halda því áfram.