Tækjaþon um helgina

21. desember 2023

Saman gegn sóun og Góði hirðirinn standa fyrir hugmyndasmiðju/tækjaþoni um lausnir gegn raftækjasóun dagana 13. og 14. október 2023

Saman gegn sóun og Góði hirðirinn standa fyrir hugmyndasmiðju/tækjaþoni um lausnir gegn raftækjasóun dagana 13. og 14. október 2023

Tækjaþon er tveggja daga hugmyndasmiðja um lausnir gegn raftækjasóun. Þátttakendur læra um vanda raftækjaiðnaðarins og þróa og skapa í framhaldinu lausnir sem sporna gegn raftækjasóun.

Fyrirlesarar fjalla um stöðu vandamálsins og hönnunarferlið þegar kemur að því að fá góða hugmynd sem þróa á yfir í árangursríkar lausnir sem eru bæði raunhæfar og gagnlegar. Teymin þróa hugmyndir, skila samantekt af þeim og kynna fyrir dómnefnd. Veitt verða verðlaun fyrir bestu hugmyndina.

Þetta er fyrir alla þá sem brenna fyrir tækni, umhverfismálum og/eða nýsköpun. Fólk á öllum aldri og kynjum er hvatt til þess að skrá sig og taka þátt, því fjölbreyttari sem hópurinn er því betra.

Tækjaþon verður haldið dagana 13. og 14. október næstkomandi hjá Umhverfisstofnun á Suðurlandsbraut 24 og í Góða Hirðinum á Köllunarklettsvegi