Reddingakaffi á sunnudögum

14. febrúar 2024

Fyrsta sunnudag hvers mánaðar komum við saman og gerum við.

Fyrsta sunnudag hvers mánaðar komum við saman og gerum við. Sjálfboðaliðar, sérfræðingar og skemmtilegir nördar koma saman og smíða, sauma, líma, laga, lóða hvers konar tól og tæki. Það er ótrúlega gaman hjá okkur. Komdu með bilað dót eða flík, bættu og breyttu. Lærðu að laga. Það margborgar sig.