Opið hús GAJA

25. apr
fimmtudagur 25.apríl kl. 11:00 fimmtudagur 25.apríl kl. 15:00
GAJA Gas- og jarðgerðarstöð SORPU Álfsnes 162

Við hlökkum til að sjá þig!

Við fögnum sumardeginum fyrsta og um leið fyrstu uppskerunni af næringarríkri moltu og bjóðum í opið hús í GAJU sumardaginn fyrsta, þann 25. apríl. Þetta er spennandi tækifæri til að forvitnast um ferðalag matarleifanna um jarðgerðarstöðina en á síðasta ári flokkuðu íbúar höfuðborgarsvæðisins um 10.500 tonn af lífrænum úrgangi - það er ekkert smá vel gert!

D A G S K R Á 11:00-15:00

Öll velkomin að mæta með kerru, fötu, eða fjölnota poka og ná í moltu fyrir vorverkin í garðinum, endurgjaldslaust!
Leiðsögn um stöðina á hálftíma fresti
Stjörnu Sævar verður með fræðslu fyrir yngsta fólkið – hefst kl. 13.00
Sérfræðingar frá Grasagarði Reykjavíkur veita fræðslu um moltu
Boðið verður upp á pylsur og gos meðan birgðir endast*

Við hlökkum til að sjá þig!