Halloween búningasmiðja

22. okt
fimmtudagur 22.október kl. 15:00
Köllunarklettsvegur 1

Halloween búningasmiðja með Þykjó 🎃

Hrekkjavakan nálgast og við fáum snillingana í Þykjó í heimsókn! Þær ætla að aðstoða okkur við að hanna og búa til okkar eigin hrekkjavökubúninga úr notuðum efni og hlutum úr Góða hirðinum. Hér fær sköpunargleðin að njóta sín og gamlir hlutir öðlast nýtt líf, hvort sem þig dreymir um að verða draugur, norn, skrímsli eða eitthvað allt allt annað.

Smiðjan er opin öllum, ungum sem öldnum, og þátttaka er ókeypis.

📍 Kassinn, viðburðarrými Góða hirðisins, Köllunarklettsvegi 1
📅 22. og 23. október
🕒 Kl. 15 – 18

Takmarkaður fjöldi kemst að og því þarf að skrá sig. Skráning fer fram með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Hlökkum til að sjá ykkur og búningana! 💚

Athugið að staðfestingarpóstur þarf að berast til þess að skráning sé tryggð.

Smelltu hér til að skrá þig: Halloween búningasmiðja

ÞYKJÓ er þverfaglegt hönnunarverkefni fyrir börn og fjölskyldur þeirra.

Hönnunarstarf ÞYKJÓ miðar að því að örva ímyndunarafl og sköpunarkraft barna í frjálsum leik. Í hönnunarvinnu höfum við til hliðsjónar hvernig hægt er að örva snertiskyn með efnisvali og formfræði, hreyfiþroska og jafnvægisskyn. ÞYKJÓ stendur einnig fyrir fjölbreyttum listsmiðjum, innsetningum og viðburðum í samstarfi við söfn og menningarstofnanir.

ÞYKJÓ er hópur hönnuða með fjölbreyttan bakgrunn sem samnýta ólíka sérþekkingu í teymisvinnu sinni. Innan vébanda ÞYKJÓ eru arkitekt, leikja- og vöruhönnuður, fatahönnuður og klæðskeri og leikmynda- og búningahönnuður.

Hópurinn vinnur einnig náið með listafólki, vísindamönnum og fræðifólki á borð við uppeldisfræðinga, líffræðinga, listfræðinga og síðast en ekki síst - með börnum.