Endurunnin list með Siggu Dögg

7. maí
fimmtudagur 7.maí kl. 11:00 mánudagur 11.maí kl. 18:00
Köllunarklettsvegur 1

Sköpum endurunna list

Sigga Dögg hefur undanfarið leitt hópa af konum í klippimyndagerð (vision board) og býður þig hjartanlega velkomna/inn/ið til að fá þér sæti, taka þér tímarit í aðra hönd og skæri í hina og sjá svo hvað kemur til þín.

Við munum föndra á gömul dagblöð sem hafa fengið nýtt líf sem stórar arkir, nota afgangs málingu og snyrtivörur, og bjarga pappírspokum og tímaritum sem voru á leið í bláu tunnuna. Höfum það huggulegt saman, spjöllum, klippum, límum, málum, fáum okkur kaffisopa og leyfum sköpunargleðinni að taka völdin.

Þátttaka er þér að kostnaðarlausu.

Smiðjan verður á opnunartíma frá 7.-11.maí.

Sigga Dögg kynfræðingur og rithöfundur er þekkt fyrir að fara ótroðnar slóðir í fræðslu og miðlun. En það sem þú kannski veist ekki um hana er að hún brennur einnig fyrir endurnýtingu og baráttunni gegn sóun.  Nú hefur hún tekið upp skærin, penisilinn og límstiftið og býður þér að koma, virkja undirmeðvitundina, og skapa einstök klippiverk með sér.