🎧 Keypt í flýti.
🔌 Notað í smástund.
🗑️ Svo… hvert fer það?
Alþjóðlegi rafrusladagurinn er 14. október og við hvetjum alla til að gramsa í skúffum og skápum.
Komdu í Kassann, viðburðarrými Góða hirðisins, á rafrusladaginn. Þar getur þú fræðst um raftæki, skoðað gömul tæki og fengið aðstoð við að laga raftækin þín eða losa þig við þau á réttan hátt. 💚
Heyrnartól, snúrur, USB-tengi, ljósaseríur, leikföng og alls konar smágræjur eru hluti af ört vaxandi „Fast Tech“ heiminum.
Smátt tæki. Stórt mál.
Smáraftæki eru ódýr, auðfengin og oft fljót að missa gildi sitt. Þess vegna safnast þau upp í skúffum eða enda í almennu rusli. Í þeim leynast þó verðmæt efni sem hægt er að endurnýta, og sum þeirra innihalda efni sem geta skaðað umhverfið ef þau fara ekki í réttan farveg. Oft þarf heldur ekki nema smá lagfæringu til að gamla tækið virki aftur.
Taktu með þér tækin úr skúffunni og fáðu aðstoð við að gefa þeim nýtt líf, eða tryggja að þau fari á réttan stað.🔧
📍 Kassinn, viðburðarrými Góða hirðisins, Köllunarklettsvegi 1
📅 Miðvikudaginn 14. október
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin. 💚