Óperutónleikar í GH

20. okt
föstudagur 20.október kl. 15:00 föstudagur 20.október kl. 18:00
Köllunarklettsvegur 1

Það eru Óperudagar og við fáum heimsókn í Góða hirðinn föstudaginn 20. október klukkan 15:00. Gadus Morhua.

Gadus Morhua hefur þegar haslað sér völl sem þjóðlaga-usla-sveit og þekkt fyrir að „djöflast í forminu." Arnar Eggert Thoroddsen komst svo að orði þegar hann fjallaði um fyrsta geisladisk hópsins, Peysur og parruk, í Morgunblaðinu um árið. Þar gat hann þess einnig að tónlistarflutningur hópsins einkennist af óvæntum bólfélögum; frumsömdu efni í bland við ævafornt, dökkleitu langspili úr innstu kynstrum baðstofunnar og flautuleik úr furðuskógi.

Gadus Morhua hefur hingað til snúið eldri þjóðlögum bæði á réttuna og rönguna og tvinnað þau saman við barokktóna. En hnignunarkennd samtvinnun baðstofuarfs og barokktónlistar, í bland við frumsamdar nýsmíðar orða og tóna innan sama hljómheims, eru aðal sveitarinnar.