Breytingar á skilmálum vefverslunar

28. apríl 2026

Skilmálar vefverslunar Góða hirðisins hafa verið uppfærðir. Helstu breytingar snúa að ósóttum pöntunum og afhendingarfresti.

Frá og með 1. maí 2026 gildir sú regla að vörur sem keyptar eru í vefverslun Góða hirðisins skulu vera sóttar innan 3 vikna frá því kaupandi fær tilkynningu um að pöntun sé tilbúin til afhendingar. Geymslupláss okkar leyfir ekki að geyma pantanirnar þínar lengur.

Pantanir sem ekki eru sóttar innan þess tíma falla niður og eru ekki endurgreiddar.

Kynntu þér skilmálana nánar: https://www.godihirdirinn.is/skilmalar/skilmalar/